Verð aðeins að tæma hugann...

Einu sinni átti ég frænda. Hann var bæði skemmtilegur og góður vinur, ég og systkini mín brölluðum oft margt sniðugt með honum. Við vorum bestu vinir! Hægt og rólega fór eitthvað að breytast og um síðir sáum við í hvað stefndi.. hann hafði eignast nýjann betri vin/vini hélt hann þá allavegana! Fíkniefni....

Ég á þennan frænda enn, en margt hefur breyst síðan við vorum krakka kjánar í sveitinni. Hann á líka ósköp venjulega foreldra, dætur, systkini, ömmur, afa, frænkur og frændur sem eiga mjög erfitt þessa dagana.

Mánudagurinn 18. ágúst var svartur dagur í lífi margra. Að fá fréttir líkt og frændi þinn/sonur þinn/bróðir þinn.... er grunaður um að vera valdur að morðinu í Hafnarfirði er svo fjarstæðukennt að það er hlægilegt... en þessar fréttir fengu einmitt við ættingjarnir!

Dagurinn var svartur eins og ég sagði og hann leið á einhvern furðulegann hátt. Nú tala ég bara fyrir mig þar sem ég ein veit hvernig mér leið þennan dag. Sveiflurnar upp og niður, grátandi reyna að útiloka þetta og ég veit ekki hvað. Ég hvorki vil né get ímyndað mér líðan annarra sem tengjast málinu!

Sorgin er flókið hugtak og erfið viðureignar og mig langar aldrei að upplifa það sem foreldrar þessara tveggja manna eru að upplifa... því jú flestir hljóta að átta sig á að báðir mennirnir í þessu máli eiga líklega fullt af ósköp venjulegum ættingjum með tilfinningar. Þið rekist án efa á ættingja þeirra hér og þar á okkar litla Íslandi. Kannski ber einhver út póstinn, er sjómaður, kennari, bílstjóri, verlsunarmaður, leikari, ritstjóri eða what ever... Eins og ég sagði bara ósköp venjulegt fólk með tilfinningar..

Fréttin sem birt var á stöð2 þar sem frændi minn var nafngreindur var algerlega út í hött. Ekki nóg með að lýsingarnar væru hræðilegar hjá ónafngreinda aðilanum (nágrannanum), ljótar myndir sýndar... og enginn tími gefinn eftir aðvörun þulsins til að koma börnum og öðrum viðkvæmum frá eða slökkva áður en herlegheitin dundu yfir. Ég persónulega fór í algera kleinu!

Það var ekki einu sinni sólahringur frá því að atburðurinn átti sér stað.. og greinilegt var að enginn var að spá í það hjá stöð 2 að bíða með nafngreiningu á frænda mínum, nákvæmar lýsingar frá kvöldinu o.s.frv með tilliti til ættingja. Hvað græða þeir á svona vinnubrögðum?

Farir frænda míns eru alls ekki fagrar í gegnum tíðina og ætla ég alls ekki að verja þær á nokkurn hátt enda veit ég ekki nema helminginn! Hitt er annað að það var ekki búið að dæma hann, játning lá ekki fyrir og rannskókn málsins var á byrjunarstigi... Þetta er bara eins og gerist í bíómyndunum... segi ekki annað...

Pointið í þessu er kannski að aðstandendur/ættingjar þeirra beggja sem voru í umræddu herbergi í þessu húsi í Hafnarfirði eiga um sárt að binda. Á einn eða annan hátt hafa allir misst eitthvað. Mér fannst það bara verða að koma fram...

Ég vil enda þetta með að senda hugheilar kveðjur til allra ættingja og vina þess látna og ég vildi óska að þessi kaldi heimur væri ögn hlýrri!

Guðný Lára


mbl.is Úrskurðaður í gæsluvarðhald
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Nákvæmlega, vel skrifað, en já helvítis stöð 2 er ekki að pæla í nærgætni við aðstandendur beggja aðila.

Ég vona að einhver geri STÓRMÁL við stöð 2 út af þessu en þeir ættu skilið að fara á hausinn fyrir svona framkomu við fólk.

Guðmundur Friðmar Birgirsson (IP-tala skráð) 20.8.2009 kl. 22:57

2 identicon

Sammála þér í einu og öllu. Fréttastofa Stöð 2 ætti að skammast sín fyrir fréttaflutning af þessu máli. Það var nákvæmleg ekkert tillit tekið til ættingja þeirra manna sem þarna áttu hlut að máli.

Sigurður Eðvaldsson (IP-tala skráð) 21.8.2009 kl. 10:27

3 identicon

Já ég er sammála þessu öllu, og trúi hreinlega ekki að þetta sé löglegt, allavega er svona fréttafluttningur á þessu stigi máls siðlaus.  Ekkert var hugsað út í að fjölskyldurnar vissu lítið eða sumir jafnvel ekkert og fengu því áfall fyrir framan fréttir stöðvar2.  Hér hefði fréttamiðill getað eyðilagt líf margra til frambúðar.  Ég hélt að fréttamenn væru líka mannlegir, en það er ekki að sýna sig þarna.  Maður er dæmdur og tekinn af lífi í beinni, á mjög ljótan og ómannúðlegan hátt, í upphafi rannsóknar.  Hélt að ekki mætti nafngreina og birta myndir fyrr en öll gögn lægju fyrir og búið væri að ákæra í máli.  En fyrir utan allt annað var það handagangurinn, hraðinn, hroðvirknin og tillitsleysið sem fer fyrir brjóstið á mér.  Aðgát skal höfð í nærveru sálar!!!

María Svava Andrésdóttir (IP-tala skráð) 21.8.2009 kl. 13:54

4 Smámynd: María Svava Andrésdóttir

Vil bæta við að svona fréttamiðlar þurfa að fá spark í rassinn!!!  Held þeir þurfi oft að vanda betur það sem þeir senda í loftir bara til að vera fyrstir með fréttirnar.

María Svava Andrésdóttir, 21.8.2009 kl. 13:57

5 identicon

Það er ógerlegt að setja sig í spor aðstandenda í svona málum, ég hef oft rekið mig á að fjölmiðlar birta of fljótt, of mikið og án þess að hugsa myndir, nöfn og aðstæður, sem er alveg óþolandi.

 Ég vil votta öllum ættingjum og vinum þessara ungu manna mína dýpstu samúð, því allir hafa misst þarna ástvin á einn eða annan hátt.

Jokka (IP-tala skráð) 21.8.2009 kl. 15:19

6 identicon

Það er nú bara einhvernveginn þannig að það virðist enginn fái neina velvild í Íslensku samfélagi hvort sem er í fjölmiðlum eða annarstaðar nema hann skuldi að minstakosti nokkur þúsund milljarða. 

Helgi Haraldsson (IP-tala skráð) 21.8.2009 kl. 23:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband