Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2009

Er þá ekki málið að skella sér á réttardansleik!??

Ef það vantar hljómsveit á slíkt ball þá útvega ég slíkar hljómsveitir.
Tugir ára í samanlagðri reynslu og mikið fjör... :)

s. 664-3812
geislinn@hotmail.com


mbl.is Vika í fyrstu réttir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

skil ekki?

Í fyrirsögninni kemur fram að ekið hafi verið á 7 ára dreng.. en svo byrjar fréttin á 10 ára... Mér finnst allt of algengt að misræmi sé í fréttum...
mbl.is Ekið á 10 ára dreng
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

ég ætti kannski að hringja í hann?

Minn giftingarhringur er búinn að vera týndur í miðstöðinni á bílnum mínum síðan síðustu páska... þessi maður gæti kannski hjálpað mér hahah :)
mbl.is Fann giftingahringinn 16 mánuðum síðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verð aðeins að tæma hugann...

Einu sinni átti ég frænda. Hann var bæði skemmtilegur og góður vinur, ég og systkini mín brölluðum oft margt sniðugt með honum. Við vorum bestu vinir! Hægt og rólega fór eitthvað að breytast og um síðir sáum við í hvað stefndi.. hann hafði eignast nýjann betri vin/vini hélt hann þá allavegana! Fíkniefni....

Ég á þennan frænda enn, en margt hefur breyst síðan við vorum krakka kjánar í sveitinni. Hann á líka ósköp venjulega foreldra, dætur, systkini, ömmur, afa, frænkur og frændur sem eiga mjög erfitt þessa dagana.

Mánudagurinn 18. ágúst var svartur dagur í lífi margra. Að fá fréttir líkt og frændi þinn/sonur þinn/bróðir þinn.... er grunaður um að vera valdur að morðinu í Hafnarfirði er svo fjarstæðukennt að það er hlægilegt... en þessar fréttir fengu einmitt við ættingjarnir!

Dagurinn var svartur eins og ég sagði og hann leið á einhvern furðulegann hátt. Nú tala ég bara fyrir mig þar sem ég ein veit hvernig mér leið þennan dag. Sveiflurnar upp og niður, grátandi reyna að útiloka þetta og ég veit ekki hvað. Ég hvorki vil né get ímyndað mér líðan annarra sem tengjast málinu!

Sorgin er flókið hugtak og erfið viðureignar og mig langar aldrei að upplifa það sem foreldrar þessara tveggja manna eru að upplifa... því jú flestir hljóta að átta sig á að báðir mennirnir í þessu máli eiga líklega fullt af ósköp venjulegum ættingjum með tilfinningar. Þið rekist án efa á ættingja þeirra hér og þar á okkar litla Íslandi. Kannski ber einhver út póstinn, er sjómaður, kennari, bílstjóri, verlsunarmaður, leikari, ritstjóri eða what ever... Eins og ég sagði bara ósköp venjulegt fólk með tilfinningar..

Fréttin sem birt var á stöð2 þar sem frændi minn var nafngreindur var algerlega út í hött. Ekki nóg með að lýsingarnar væru hræðilegar hjá ónafngreinda aðilanum (nágrannanum), ljótar myndir sýndar... og enginn tími gefinn eftir aðvörun þulsins til að koma börnum og öðrum viðkvæmum frá eða slökkva áður en herlegheitin dundu yfir. Ég persónulega fór í algera kleinu!

Það var ekki einu sinni sólahringur frá því að atburðurinn átti sér stað.. og greinilegt var að enginn var að spá í það hjá stöð 2 að bíða með nafngreiningu á frænda mínum, nákvæmar lýsingar frá kvöldinu o.s.frv með tilliti til ættingja. Hvað græða þeir á svona vinnubrögðum?

Farir frænda míns eru alls ekki fagrar í gegnum tíðina og ætla ég alls ekki að verja þær á nokkurn hátt enda veit ég ekki nema helminginn! Hitt er annað að það var ekki búið að dæma hann, játning lá ekki fyrir og rannskókn málsins var á byrjunarstigi... Þetta er bara eins og gerist í bíómyndunum... segi ekki annað...

Pointið í þessu er kannski að aðstandendur/ættingjar þeirra beggja sem voru í umræddu herbergi í þessu húsi í Hafnarfirði eiga um sárt að binda. Á einn eða annan hátt hafa allir misst eitthvað. Mér fannst það bara verða að koma fram...

Ég vil enda þetta með að senda hugheilar kveðjur til allra ættingja og vina þess látna og ég vildi óska að þessi kaldi heimur væri ögn hlýrri!

Guðný Lára


mbl.is Úrskurðaður í gæsluvarðhald
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband