fleiri svona "krípí" sögur!

fyndið því í morgun var ég að gramsa á netinu og fann þessa gömlu umræðu á barnalandi (síðan í jan á þessu ári)... það eru nokkrar "krípí" sögur þarna um svona heimsóknir frá ókunnugum.....

http://er.is/messageboard/messageboard.aspx?advid=8382954&advtype=52&showAdvid=8383031#m8383031


mbl.is Læddist óboðinn inn á heimili að nóttu til
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

kúl myndband!

Þetta myndband er útúr kúl.... og mjög svo öðruvísi!!  Þetta lag var í uppáhaldi hjá mér vægast sagt þegar það kom út fyrir 15 árum!!!

Útsetningin á laginu núna er flott, en ég sakna gamla söngsins.. með fullri virðingu fyrir honum Páli Óskari... sem mér finnst vera algert æði by the way..!! :) Hann söng þetta bara betur í gömlu útgáfunni..!
mbl.is Nýtt myndband með Páli Óskari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

dont worry be happy...

... það þýðir ekkert að velta sér upp úr þessum áhyggjum...! Bara smæla framan í heiminn því þá smælar heimurinn framan í þig Whistling
mbl.is Merkisdagur í vísindunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað næst? Á að taka stólinn af honum líka?

Maður verður svo reiður að lesa svona! Sér í lagi þar sem þessi tæki nýtast ekki mörgum öðrum! Fyrir utan að með svona aðferðum er ekki bara verið að svipta bóndann landbúnaðartækjunum sínum heldur líka stöðva hann í að geta sinnt sínum búskap sem skildi!

Auðvitað þarf hann líkt og aðrir að standa í skilum, en afhverju er ekki samið aftur og leyft honum að vinna í sínum málum.. Tala nú ekki um að leyfa fólki að nýta sér sinn frest til fulls!!!

Þriggja ára sonur minn er hreyfihamlaður... og þegar ég heyri svona sögur sé ég svart...! Það er eins gott að þetta fólk passi sig... því ég er svo mikil gribba... þeim langar ekkert að lenda í mér seinna haha :)
mbl.is Lamaður bóndi sviptur sérbúnum vélum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hún er svo ljóshærð...

... eða hreinlega þarf að fá athygli fólks... Heyrði einhverstaðar að vinsældir hennar hefðu farið langt niður á við þarna í Ameríkunni....
mbl.is Hefur átt „leynilega elskhuga“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kannski að ég fái símtal? ;o)

Ef Einar er hættur að umba Garðar.. þá getur hann nú farið að hringja í okkur í Umsvif ;o) hehe
mbl.is Einar Bárðarson dregur sig í hlé
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Útgáfutónleikar Umsvifs á Akureyri um versló!

Útgáfutónleikar Umsvifs
-       Stormur hugans -
stormurhugans
Verið velkomin á tónleikana okkar
Laugardaginn 2. ágúst klukkan 22:30
Allinn Akureyri - Gránufélagsgötu 10
Geisladiskurinn seldur á staðnum

Frítt inn!

Jæja þá er loksins komið að því að ég og hljómsveitin mín gefum út okkar fyrsta disk! Við erum búin að vinna myrkranna á milli í allt sumar við gerð þessa disks.. svo vonandi fellur þetta í kramið...! :)

kveðja Guðný Lára
www.umsvif.com


Skrítið ég var þarna í fyrradag!!

oxfordststabbing_468x329Jahá.. furðulegt að lesa þessa frétt þegar mar var þarna bara deginum á undan! Reyndar fann maður alls ekki fyrir neinum ótta hvar sem maður kom þarna í London. Bæði var lögreglan allstaðar sýnileg, sírenuvæl hluti af stórborgarbragnum og bretar almennt kurteisir og almennilegir.

Við sáum ekki margt ófrýnilegt þarna enda var upplifunin frábær. En jú svo sem eins og annarstaðar veit maður að margt óhreint þrífst innan um.... Ég sat t.d. inn á fridays á Leicestersquer og sá þar í húsasundi fjóra unga stráka vera að díla eiturlyfjum... og á einhvejrum klúbbi sá ég einhvern taka í nefið o.fr.v.. en ekkert sem var að hræða mann eitthvað sérstaklega.

Við fórum á frábærann stað sem heitir Camden tow.. þar eru endalausir markaðir, barir, búðir og svo má lengi telja.. Þar var líka eeeeendalaust mikið af fólki!!! Stór hluti af fólkinu þar voru goth týpur og pönkarar.. alveg sauðmeinlaust fólk!! Sumstaðar í heiminum hefði maður tekið sveig fram hjá hópi af slíku fólki en ekki þarna Tounge

já það er leiðinlegt að heyra svona fréttir eins og morð á oxfordstreet!! Ég googlaði þessa frétt og fann fréttir um þetta á ensku.. það virðist alls ekki vera víst útafhverju þetta gerðist. Sumir segja að einhver hafi hent pappaglasi í röð við Mc donalds..og þá hafi þetta gerst í kjölfarið... Aðra grunar að þetta atvik hafi verið ákveðið fyrirfram.. og einhvert gengi komi þar við sögu...En.. Þetta gerist því miður.. en sem betur fer er London stórborgin samt að öllu jöfnu ágætis staður sem óþarfi er að vera hræddur við!! 

kv Guðný Lára


mbl.is Myrtur á Oxfordstræti um miðjan dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

pay it forward....!! :)

Pay it forward

Fyrstu 5 sem skrá sig í kommentunum hér við bloggið og segjast taka þátt fá sent til sín eitthvað handgert af mér. Þessi hlutur mun berast ykkur áður en árinu 2008 líkur. Í staðinn setur þú þetta á þitt blogg og færð 5 nöfn og gefur þeim eitthvað eftir þig. Ef þú hefur áhuga skráðu þig þá! Skildu eftir komment og hafðu netfangið þitt með ef ég veit það ekki. Ég hef svo samband og bý eitthvað til bara handa þér.

Vinkona Lindu Daða þýddi þennan text hér fyrir neðan ef þið viljið lesa hann frekar.

The first five of you that leave a comment here on this post requesting to participate will receive a handmade item from me. I will send it to you sometime this year In return, you will have to post in your blog that you are taking five names and you will gift those people in return. Interested?? Then leave a comment with your e-mail addy and I will contact you short

Annað: Ekki er skilyrði að stunda handavinnu né halda þessum keðjuleik áfram svo að ef það er einhver sem ætlar sér ekki að setja þetta á bloggið sitt (eða er ekki með blogg) né gefa öðrum 5 gjafir þá er það allt í fína lagi.  En ég mun búa til eitthvað handa þeim 5 fyrstu sem skrá sig.


Seint blogga sumir en blogga þó...

Jæja... Mikið er ég ódugleg þessa dagana við að blogga! Ég held það hljóti að segja fólki það að ég er húð löt... eða það er allt of mikið að gera hjá mér.. hehe

Annars er allt það besta að frétta úr Skálagerðinu. Sólin farin að vera hérna á hverjum degi og snjórinn bráðnar hratt og vel af grasinu. Ég get ekki beðið eftir því að fara að gera eitthvað hérna í garðinum mínum! Ég kvíði því nú samt líka dálítið því garðuinn er svoo GEÐBILAÐ stór sko! En ég hlýt að ráða fram úr þessu svona með sumrinu Cool

Helgin var alveg yndisleg hjá okkur fjölskildunni! Við Sædís tók okkur til á laugardag og gerðum hreingerningu í húsinu okkar. Það var mikil og góð hjálp í litlu / stóru snúllunni minni. Svo um kvöldið kíktum við Stefán í heimsók til Jokku og Bigga þar sem við spiluðum og gerðum okkur glaðann dag/kvöld/nótt... Smile Valgerður og Baldvin kíktu einmitt líka þannig að það var sko nóg að gera við að spila! Í gærdag fórum við svo með krakkana í sund út í Þelamörk! Vá hvað Alex Ernir var að elska að vera í "STÓRA BAÐINU! ... Það tók hann smá tíma að venjast þessu.. hann var pínu hræddur fyrst reyndar.. en neitaði svo að fara uppúr á endanum.. hehhe alveg typical!!

Eins og flestir vita þá er ég farin að kenna. Er umsjónarkennari í 2. bekk. Mér finnst þetta alveg ógurlega skemmtilegt starf! Það kom mér reyndar á óvart hversu skemmtilegt þetta er ef ég á að vera alveg hreinskilin! Ég verð í þessari vinnu fram á vor.. en næsta haust klára ég svo námið mitt á vettvangi í einhverjum öðrum skóla! Þá verður háskólagráðan loksins í höfn... og minns getur farið að skipuleggja hvað meira skal læra! W00t

Svo núna 7. maí erum við hjónin að fara til London í fjóra daga! Það verður fínt að skreppa aðeins af klakanum og slaka á í stórborginni.. segi ekki annað! Veit einhver um eitthvað sem maður svona VERÐUR að gera þarna... söngleiki... leikrit.. pöbbar... mall eða eitthvað?? :)

ást og friður
g....


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband